A midvikudagskvoldid var svaka party med hopnum nidri vid sjo...
var bara svona american next topmodel filingur. Otrulega toff
umhverfi, risastor pallur yfir sjonum med hvitum husgognum og rumum
fullum af pudum, risadansgolf og bar. Ekki thurfti ad spyrja
ad thvi ad eins og venjulega thurftum vid stelpurnar ad berja af
okkur Italana. Vorum ekki komnar heim fyrr en um 4 leitid og attum
svo rutu ad hitta Rocco kl.10 morguninn eftir.
Thar sem thad er engin timatafla hja straetokerfinu
herna og stundum kemur ekki straeto i heilu klukkutimana tha logdum
vid af stad klukkan 8 i 15 minutna straetoferd. Thad gekk
alveg afallalaust fyrir sig ad koma ser ut a rutustod og
kaupa midana, enda hjalpadi Michell okkur (italskur vinur okkar fra
Kongo). Tha hofst 7 klst rutuferd thar sem vid svafum sem betur fer
mestan hluta ferdarinnar.
Rocco og Antonio (brodir hans) komu beint ur
brudkaupi vinafolks og sottu okkur a lestarstodina.
A leidinni komum vid vid og skodudum gamalt griskt hof,
thar saum vid einnig melonu-akur og edla hljop yfir taernar
a Sigurlaugu.
Matera.jpg)
Unesco svaedid i Matera... thar sem fataeka
folkid lifdi fyrr a oldinni. (Myndin er af google, okkar
myndir koma sidar).
Rocco var buinn ad finna fyrir okkur odyra gistingu i gomlu
munnkaklaustri i litla baenum sem hann byr i
(Montescaglioso) og svo for hann med okkur til Matera (59.000
manna borg i nagreni Montescaglioso). Thar gengum vid um gamla
baeinn og skodudum gamalt fataekrahverfi thar sem husin
voru byggd utan um hella i fjallshlid. Ekkert sma serstakt og
gaman ad sja. Thess ma geta ad kvikmyndin The Passion of The
Christ var tekin upp tharna. Svo kom Vince, vinur Rocco og
Antonio og vid fengum okkur Pizzu i veitingahusi i einu af
hellahusunum sem buid var ad gera upp. Endudum svo kvoldid med
thvi ad ganga um Montescaglioso og kikja a barina.
A fostudeginum forum vid Sigurlaug, Eyrun, Rocco, Antonio,
Vince, Edward og Anna Klara og skodudum "draugaborgina" en thad er
borg sem er byggd a fjalli sem var ekki nogu trygg thannig ad arid
1976 lysti stjornin thvi yfir ad ekki vaeri lengur ohaett ad bua
tharna thvi byggingarnar faeru ad hrynja. Arid 1980 kom svo stor
jardskjalfti og tha flutti sidasta folkid ur borginni. Thannig ad
eftir stendur heil borg algjorlega yfirgefin, hluti hennar hruninn
en annad mis illa farid. Thad marrar i hurdum vegna gegnumtrekks
svo thad getur verid mjog draugalegt ad vera tharna ad kvoldi til.
- Draugaborgin.
Thadan forum vid og skodudum tvo litil thorp uppi i fjollum,
annad theirra er a lista yfir fallegustu thorp Italiu, og thad var
sko sannarlega fallegt og med gott utsyni. Thar var haegt ad
fljuga larettur i loftinu i linu a 120 km/klst 400 metrum yfir
jordu a milli tveggja tinda og svo aftur til baka... Vid vorum
ekkert sma heppin thvi ad "thvi midur" var fullt i allar ferdirnar
thann daginn. Thadan var stefnan tekin til baka til Montescaglioso.
Nu var lidid a kvoldid og allir ordnir svangir svo vid skelltum
okkur til slatrarans og thar fengum vid okkur grillad
hestakjot med engu sem var grillad hja slatraranum... thetta var
voda vinsaell stadur, enda sjuklega gott!! Vid bordudum a okkur
gat, enda ekki fengid kjot sidan vid komum til Italiu (alltaf bara
pizza og pasta i bodi).
Um kvoldid skelltum vid okkur fyrst nidur i bae a pobbana en svo
var stefnan tekin med ollu genginu a Tarantino-disko rett fyrir
utan baeinn. Thar var uppàklaedd hljomsveit sem spiladi log ur
myndunum hans Tarantino og thar var klikkud stenming. Um fimmleitid
trodum vid okkur i tvo bila og keyrdum ut a strond, thar kveiktum
vid vardeld, vodum i volgum sjonum og horfdum a solina koma upp.
Sumir fengu ser sma blund vid vardeldinn og heldu svo heim a leid
um sjoleitid (vid tilheyrdum theim hop) en adrir svafu bara a
strondinni. Thad var ekkert sma fyndid ad sja gamla folkid med
sundhetturnar sinar ad maeta a strondina thegar vid vorum ad
fara!!!
A laugardeginum budu foreldrar Rocco okkur i typiskan italskan
hadegisverd... fyrst voru allskyns ostar med braudi og salami.
Naest var thad audvitad pasta, svo salat, svo var okkur bodinn is,
sem vid afthokkudum pennt thar sem vid vorum alveg ad springa.
Eftir thad heldum vid ad atinu vaeri lokid en nei, nei, thar hofdum
vid aldeilis rangt fyrir okkur thvi ad naest komu ferskar fikjur
med hunangi (en engin okkar hafdi adur bragdad ferskar fikjur...
mjog godar) og svo var thad sukkuladi, kaffi og likjor. Auk thess
var hvitvin med matnum sem vid hofdum ekki i okkur ad afthakka.
Thar sem vid hofdum adeins sofid i 3 klst um nottina (vegna thess
ad vid urdum ad vera farnar ut af hotelinu (munnkaklaustrinu)
klukkan 11 um morguninn, vorum vid nu bara farnar ad finna dalitid
a okkur eftir thetta allt saman.
Rocco a fraendfolk ut um allan bae svo vid fengum alveg
svakalega goda leidsogn um baeinn... t.d. vann einn fraendi hans i
risa klaustri tharna i baenum og hann gaf okkur einka-ferd um
klaustrid og syndi okkur a svaedi i klaustrinu sem voru lokud
almenningi. Um kvoldid var svo sogulegur vidburdur i baenum, svaka
skrudganga, thar sem folkid var allt uppaklaett i gamaldags fot sem
endadi svo med flugeldasyningu sem stodst alveg samanburdinn vid
islenskar flugeldasyningar.
Ad lokum keyrdu strakarnir okkur aftur a rutustodina, thar sem
beid okkar mesta naeturrutuferd sem sogur fara af... en
framhald sidar thvi eg er thegar ordin klukkutima of sein i
party!