Kata

06.07.2007 10:06:49 / kata

Eitthvað að frétta?

 

 

 

Við Maggi keyptum bíl um daginn, öflugur Volvo kaggi, árgerð 96 (Eins og á myndinni bara kóngablár). Loksins hefur Toyotan sungið sitt síðasta, að minnsta kosti fyrir okkur... en ætli Hákon muni ekki skrölta eitthvað um á henni þangað til að hún gefur sig algjörlega. Volvo-inn er alveg gasalega lítið keyrður enda var það hún amma gamla sem átti hann á undan okkur.  Við Maggi þrifum bílinn og bónuðum í vikunni og nú lítur hann alveg svakalega vel út! Tekið skal fram að ég hef aldrei bónað Toyotuna í þessi 5 ár sem ég hef verið á henni :| en batnandi fólki er best að lifa...

Ég fékk gönguskó í afmælisgjöf svo nú er ég alltaf game í gönguferðir til að venjast skónum áður en laugavegurinn verður tekinn eftir 2 vikur. 

Ég er byrjuð að læra ítölsku í frítíma mínum og markmiðið er að geta babblað svolítið eftir 3 vikur þegar við Eyrún og Sigurlaug förum til Sikiley. 

Ciao! 

Sigurlaug skrifaði
Til hamingju með bílinn!! :) Við stelpurnar þurfum að hittast sem fyrst og ræða um gönguhelgina!
Kata skrifaði
Já algjörlega, stefnum á eitthvert kvöldið í vikunni. Ég kemst bæði á mið og fim.
Eyrún Harpa skrifaði
Til hammó með kaggann! Ég er til í hitting á miðvikudagskvöld en er busy á fimmtudagskvöldið;) Koma stelpurnar ekki á morgun? Getum reynt að draga þær með, hvað segið þið um vegamót??
Kata skrifaði
Já ég var að spjalla við Sigurlaugu, henni líst líka vel á miðvikudagskvöldið. Mér líst vel á Vegamót :)
Sigurlaug skrifaði
Vei - gaman.... Ég er til í að hittast á Vegamótum. Ef við náum að draga stelpurnar með (allavega einhverjar af þeim) þá getum við rætt gönguhelgina okkar... en ef þetta verða bara við þrjár þá ræðum við bara um ítalíu - það er alveg kominn tími á það ;) !!!
Hudla skrifaði
ÚÚÚ flottur bíll ;) Enhei hvenær ætlum við systurnar á esjuna eða eithverja göngu? Væri gaman að taka göngu upp á heita læknumrétt fyrir utan hveragerði. Hæft að leggja í hveragerði og taka dagsgöngu, líka hægt að gista...verðum að gera e-ð áður en ég fer út!
Kata skrifaði
Já eða áður en ég fer út!! úllalla, þá höfum við bara rúma viku! Svo er bara u.þ.b. vika á milli þess þegar ég kem heim og þú ferð út! Trúiru þessu...

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.